fimmtudagur, 1. október 2015

30 börn i Túni

Nú eru 30 börn skráð í frístund í Túni sem er hámarksfjöldi. Þær umsóknir sem berast fara á biðlista og verður haft samband um leið og pláss losnar.

miðvikudagur, 12. ágúst 2015

Skáningar í frístund dagana 17. til 24. ágúst hafa tekið kipp.
Frístund opnar því í Túni mánudaginn 17. ágúst klukkan 12:00.  Ég minni enn á að skrá þarf börn sérstaklega í frístund þessa daga fyrir skólabyrjun.  Til að skrá barn í vetrarstarfið þarf svo að fylla út rafræna umsóknareyðublaðið sem er hér

mánudagur, 10. ágúst 2015

Skráning í vetrarstarfið í Túni fer vel af stað.  Ég vil biðja foreldra að hafa í huga að sækja tímanlega um til að tryggja pláss.  Rafrænt umsóknareyðublað er hér neðar á síðunni.

Athugið:  Skráningar dagana áður en skóli hefst fara hinsvegar hægt af stað.  Þar sem við teljum ekki forsvaranlegt að opna á meðan börnin hafa mjög takmarkaðan félagsskap höfum við ákveðið að fresta ágúst-opnun um nokkra daga og miða við að opna mánudaginn 17. ágúst í þeirra von að fleiri börn hafi þá boðað komu sína.
Ég vil biðja foreldra að fylgjast vel með heimasíðunni, senda tölvupóst á tun@nordurthing.is eða hringja í síma 6635290 ef einhverjar spurningar vakna.

Tún í ágúst.

Tölvupóstur hefur verið sendur út til að kanna áhuga foreldra á því að nýta frístundaheimið Tún dagana 12. ágúst til og með 24. ágúst.  Ef næg þátttaka fæst verður Tún opið virka daga á þessu tímabili milli klukkan 12:00 og 16:15.
Þeir foreldrar sem hyggjast nýta frístund á þessu tímibili þurfa að óska eftir því með tölvupósti í póstfangið tun@nordurthing.is degi áður en áætlað er að barnið mæti í Tún.
Þessa daga áður en hefðbundið vetrarstarf hefst í Túni skal greitt tímagjald kr: 320,- fyrir hvern skráðan tíma.

Upplýsingar um vertarstarfið í Túni, gjaldskrá og rafrænt umsóknareyðublað er að finna hér neðar á síðunni.


Opnað hefur verið fyrir skráningar í frístund í Túni veturinn 2015-2016.

Hefðbundið vetrarstarf hefst í Túni þriðjudaginn 25. ágúst.  Þar verður boðið upp á skemmtilegt frístundastarf fyrir börn í 1. – 4. bekk,  frá því skólastarfi lýkur til klukkan 16:15.  
Starfið felst meðal annars í föndri, hópleikjum, frjálsum leik, hópefli, dansi, fræðslu og vettvangsferðum svo fátt eitt sé nefnt.  
Fyrstu dagana tekur starfsmaður Túns á móti börnunum fyrir utan stofur 6 ára bekkja þegar skóla lýkur og fylgir þeim í Tún.  Mjög mikilvægt er að starfsmenn hafi upplýsingar um veikindi eða önnur forföll og því þarf að hringja í Tún í síma 6635290.  Ekki er nóg að láta vita í skólann.  Allar aðrar upplýsingar, athugasemdir eða forföll sem fyrirséð eru með dags fyrirvara má senda í tölvupósti á tun@nordurthing.is
Um klukkan 14:00 er boðið upp á holla og góða síðdegishressingu.  Eigi börnin að sækja íþróttir eða annað skipulagt starf á þeim tíma sem Tún er opið hjálpa starfsmenn börnum af stað eða fylgja þeim ef með þarf.  Allar upplýsingar um slíkt þurfa að berast frá foreldrum í gegnum síma eða tölvupóst.  Starfsmenn geta ekki reitt sig á munnleg skilaboð frá börnunum.  Klukkan 16:15 þarf að sækja börnin, eða þau eru send heim eftir fyrirmælum foreldra.
Boðið er upp á fulla nýtingu og hálfa nýtingu eins og síðasta skólaár.  Hálf nýting getur verið t.d. önnur hver vika, mánudagur og þriðjudagur í fyrstu viku og miðvikudagur, fimmtudagur og föstudagur í næstu eða einhverjir 10 fyrirfram ákveðnir dagar í mánuði, en þá þarf að senda upplýsingar um hvaða dagar það eru fyrir 1. hvers mánaðar.  Einnig er hægt að nýta t.d. 2 1/2 dag í viku.  Hálfur dagur er fyrri partur - frá því skóla lýkur til klukkan 14:45.
Tún er opið allan daginn á starfsdögum Borgarhólsskóla.  Hinsvegar er lokað í haust- og vetrarfríum en frístund fylgir að öðru leyti skóladagatali.  Tún er lokað í jóla og páskafríum og á lögbundnum frídögum.  Á starfsdögum skólans þurfa þeir foreldrar sem hafa fulla nýtingu ekki að greiða fyrir aukatímana en þeir sem eru með hálfa nýtingu og kjósa að nýta sér Tún fyrir hádegi greiða tímagjald kr: 320,- 
Gjaldið fyrir fulla nýtingu er kr:  20.000,-  en fyrir hálfa nýtingu kr: 11.500,-.  Innifalin í gjaldinu er síðdegishressing.  Systkinaafsláttur er 50% fyrir annað barn og 75% fyrir þriðja.
Skráning verður að hafa borist í síðasta lagi daginn áður en barnið mætir í Tún.  Miðað við núverandi forsendur getum við tekið við 30 börnum í Tún.  Sæki fleiri um fara þeir á biðlista.  Ef færri börn eru á skrá verður hægt að bæta við börnum fram eftir vetri.

Við í Túni hlökkum til samstarfsins. 

Opnið hlekkinn hér fyrir neðan til að skrá barn:

Rafrænt umsóknareyðublað