mánudagur, 10. ágúst 2015

Tún í ágúst.

Tölvupóstur hefur verið sendur út til að kanna áhuga foreldra á því að nýta frístundaheimið Tún dagana 12. ágúst til og með 24. ágúst.  Ef næg þátttaka fæst verður Tún opið virka daga á þessu tímabili milli klukkan 12:00 og 16:15.
Þeir foreldrar sem hyggjast nýta frístund á þessu tímibili þurfa að óska eftir því með tölvupósti í póstfangið tun@nordurthing.is degi áður en áætlað er að barnið mæti í Tún.
Þessa daga áður en hefðbundið vetrarstarf hefst í Túni skal greitt tímagjald kr: 320,- fyrir hvern skráðan tíma.

Upplýsingar um vertarstarfið í Túni, gjaldskrá og rafrænt umsóknareyðublað er að finna hér neðar á síðunni.


Engin ummæli:

Skrifa ummæli